Heim 2. TBL. 2025 Æfingabúðir fyrir Malmö Open

Æfingabúðir fyrir Malmö Open

1 min read
Slökkt á athugasemdum við Æfingabúðir fyrir Malmö Open
0
82

Það var mikil stemning í íþróttahúsi ÍFR dagana 29-31 desember þar sem fram fóru æfingabúðir í borðtennis. Hákon Atli Bjarkason, afreksmaður í borðtennis, skipulagði og hélt utan um æfingabúðirnar. Það voru 12 iðkendur á áldrinum 9-32 ára sem var boðið að taka þátt. Tilgangur æfinganna var að undirbúa hópinn fyrir Malmö Open sem mun fara fram dagana 6-8 febrúar 2026.

Allir í hópnum voru sammála um það hvað það væri gott að komast á æfingar yfir hátíðarnar, sérstaklega til þess að koma sterk inn strax á nýju ári.

Það hefur verið mikið um nýliðun í borðtennis undanfarið og fjölgað verulega í flokkum hreyfihamlaðra á árinu. Það verður spennandi að fylgjast með hópnum á nýju ári þar sem á dagskráin er full af mótum bæði hér heima og erlendis.

Sækja skyldar greinar
Load More By Melkorka Hafliðadóttir
Load More In 2. TBL. 2025
Comments are closed.

Skoðaðu einnig

ÍFR Para Open í borðtennis

Laugardaginn 29. nóvember fór fram ÍFR Para Open í borðtennis. Mótið fór fram í íþróttahús…