Special Olympics á Íslandi fær sífellt fleiri tilboð um mót erlendis fyrir aðildarfélög ÍF og/eða þau félög sem hafa iðkendur innan sinna raða sem falla undir skilgreiningu þátttöku á mótum Special Olympics. Félögin fá tækifæri til að vinna saman að því að nýta þann kvóta sem Ísland fær og sífellt fleiri félög sýna áhuga að taka þátt.
Stærsta verkefnið 2026 er þátttaka í SO Festival í Danmörku í maí en þar taka þátt eftirtalin félög; BH, Hafnarfirði, Eik, Akureyri, Fjörður, Hafnarfirði, ÍFR, Reykjavík, Ívar, Ísafirði/Vestfjörðum, Nes, Suðurnesjum, Völsungur, Húsavík, Ægir, Vestmannaeyjum, Ösp, höfuðborgarsvæðinu.
Íslensku keppendurnir taka þátt í badminton, boccia, borðtennis, frjálsum íþróttum, golfi, keilu, handbolta, knattspyrnu,nútimafimleikum og sundi.

Þarna mæta til leiks 88 íslenskir keppendur og þá á eftir að bætast við hópur þjálfara auk aðstandenda sem fylgjast munu með leikunum og aðstoða þar sem þarf.
Norræn nefnd Special Olympics hefur unnið markvisst að því að efla samstarf milli Norðurlandanna og árið 2026 kom fram nýtt tilboð um opið fjölgreinamót í Svíþjóð
Staðfest þátttaka aðildarfélaga ÍF á eftirtöldum mótum árið 2026
Small Nations Games í boccia, Lichtenstein 23. – 26. april
SO Festival, Hróarskeldu, Danmörku 29.-30. maí
Fjölgreinamót Special Olympics í Svíþjóð, 2.-6. september
Opið sundmót Special Olympics í Möltu 10. – 14. september
Ný tilboð sem hafa verið að berast eru m.a. júdómót í Bozníu og skíðamót í Noregi
Alþjóðasamstarf þjóða
Sú áhersla sem lögð hefur verið á að ekki megi þýða heiti Special Olympics samtakanna þannig að heitið sé alltaf það sama á heimsvísu, er ekki síst til að einfalda samstarf og tengja lönd saman gegnum samtökin, án tillits til tungumála eða staðsetningar. Special Olympics international eru nú með starfsemi í 207 löndum og ná til 5-6 milljóna iðkenda. Samtökin sem áður voru nær alfarið með íþróttastarfsemi eru í dag í markvissu samstarfi við alþjóðasamtök um heilbrigðis og menntamál, mannréttindi og aukin lífsgæði þess hóps sem fellur undir SOI.
Síðustu ár hefur áherslan færst mjög á inngildingu í samfélögum og „unified“ eða þátttaka ófatlaðra er orðin mjög stór þáttur í starfinu, jafnt í verkefnum tengt íþróttum sem félagslegu starfi. Sífellt fleiri lönd hafa skrifað undir viljayfirlýsingu um alþjóðasamstarf aðildarlanda SOI um inngildingu. Ísland var eitt af fyrstu löndunum til að staðfesta þetta samstarf en það var árið 2024.
Í raun mætti tala um Special Olympics samtökin sem mannréttindasamtök.
Rauður þráður í öllu starfi samtakanna er að hver einstaklingur nái að blómstra á eigin forsendum og fá tækifæri til að nýta sína styrkleika á sviðinu með jafningjum.
Næsta stóra verkefni eru heimsleikar Special Olympics í Santiago, Chile í október 2027


