Vetrarleikar Paralympics fara fram dagana 6.-15. mars 2026 í Mílanó-Cortina á Ítalíu. Í ár marka leikarnir merk tímamót, en þetta er í 50. sinn sem Vetrarleikar Paralympics eru haldnir.
Fyrstu leikarnir fóru fram árið 1976 í Örnsköldsvik í Svíþjóð, þar sem 198 íþróttafólk keppti í alpagreinum og skíðagöngu. Síðan þá hafa leikarnir vaxið gríðarlega og í dag er keppt í sex íþróttagreinum: Alpagreinum, skíðaskotfimi, skíðagöngu, íshokkí, snjóbretti og hjólastólakrullu.

Áætlað er að um 665 íþróttafólk frá 50 þjóðum taka þátt í leikunum í ár og lofar keppnin að verða bæði fjölbreytt og spennandi.
Opnunarhátíð leikanna fer fram 6. mars á Arena Di Verona, þar sem þemað verður „life in Motion“. Nú er niðurtalningin hafin!
