Heim 1. tbl. 2026 Vel heppnaðir Íslandsleikar í áhaldafimleikum

Vel heppnaðir Íslandsleikar í áhaldafimleikum

2 min read
Slökkt á athugasemdum við Vel heppnaðir Íslandsleikar í áhaldafimleikum
0
32

Íslandsleikar Special Olympics í áhaldafimleikum fóru fram í fimleikahúsi Bjarkar í Hafnarfirði 27. mars. Keppni fór fram samhliða þrepamóti FSI en frábært samstarf hefur verið í áratugi við FSI m.a. vegna Íslandsleika Special Olympics í áhaldafimleikum.

Keppendur voru að taka þátt í mismunandi flokkum og verðlaun veitt samkvæmt þvíþ Skipt er í flokka út frá getustigi keppenda á mótum Special Olympics.
Keppendur voru á mismunandi aldri, ungir iðkendur að stíga sín fyrstu skref og eldri reynslumeiri þar sem þeir elstu voru yfir fertugt en allir skemmtu sér jafn vel.
Miklar framfarir hafa orðið og það var glaður hópur sem steig á verðlaunapall að lokinni keppni. Umgjörðin var glæsileg og allir þeir sem komu að framkvæmd og undirbúningi fá innilegar þakkir.

Rósa Benediktsdóttir, yfirþjálfari Gerplu hafði þetta að segja:

Við tókum þátt í Íslandsleikunum og gekk okkur einstaklega vel. Voru þau talsins sem kepptu og skipt hópnum niður í stelpur og stráka, sem gerði mótið skýrt og vel skipulagt.

Keppnin var skipt í Level 1,2,3 og B,C – Sem tryggði að allir kepptu á sínu rétta getustigi samkvæmt Special Olympics.org síðunni. Liðin stóðu sig frábærlega í öllum greinum og sýndu bæði samheldni og metnað. Það var greinilegt að undirbúningurinn hafði skilað sér og allir lögðu sig 100% fram.

Við fórum mjög ánægð og stolt af okkar krökkum frá þessu móti.

Sækja skyldar greinar
Load More By Thelma Grétarsdóttir
Load More In 1. tbl. 2026
Comments are closed.

Skoðaðu einnig

Fyrsta keppnislið Íslands á Special Olympics körfuboltamóti

Höfundur, Anna Karólína Vilhjálmsdóttir Í tengslum við FIBA Open í Sviss 2026 verður sérst…