Stefanía var kjörin Íþróttakona UFA árið 2025 og var einnig tilnefnd sem Íþróttakona Akureyrar.
Stefanía er afrekskona í frjálsum íþróttum þar sem hún er margfaldur Íslands- og norðurlandameistari ásamt því að hafa komist á öll Evrópu- og heimsmeistaramót í frjálsum íþróttum fatlaðra síðustu 8 ár. Að sögn Kaffið.is er það heiður fyrir Íþróttalíf á Akureyri að eiga þessa stjörnu innan sinna raða sem keppir á Evrópu og Heimsmeistarmótum á hverju ári og að UFA er mjög stolt að tilnefna jafn öfluga íþróttakonu til íþróttakonu Akureyrar
Ásamt því að vera afreksíþrótatkona í sinni grein er Stefanía einnig virk innan starfs UFA að miðla til yngri iðkenda og hefur sínt að stóru sigrarnir felast í því að sigrast á sinni fötlun.
Við óskum Stefaníu til Hamingju með nafnbótina og tilnefninguna!

