Íslands- og unglingameistaramótið í 50m laug fór fram í Ásvallalaug um síðustu helgi. Mótið er haldið í samstarfi SSÍ og ÍF og var umgjörðin í öruggum og öflugum höndum alla helgina.
Róbert Ísak Jónsson bætti Íslandsmetið í 200m bringusundi þegar hann synti í úrslitum á 2:34.62. Róbert Ísak var einnig með besta afrek Para sundmanna fyrir 200m bringusund er hann hlaut 686 stig.

Mótið var glæsilegt í alla staði og vill Íþróttasamband fatlaðra koma á framfæri kæru þakklæti til allra þeirra sem gerðu mótið að jafn myndarlegum viðburði og raun bar vitni.
Hægt má nálgast allar frekari upplýsingar eins og úrslit of fleira frá mótinu.
Myndir / JBÓ





