Opnunarhátíð Paralympics vetrarleikanna Mílanó og Cortina 2026 fór fram í gærkvöldi í Arena Di Verona, þar sem Paralympic eldurinn var kveiktur og leikarnir þar með formlega settir.
Í aðdraganda opnunarhátíðarinnar fór fram sérstaök athöfn í Cortina d‘Ampezzo þar sem fimm logar sem kveiktir höfðu verið á svokölluðum Flame Festival hátíðum í Tórínó, Mílanó, Bolzano, Trento og Trieste voru sameinaðir í einn Paralympic eld. Eldurinn varð síðan miðpunkturinn sem ferðaðist um Ítalíu áður en hann kom til Verona fyrir opnunarhátíðina. Meðal þátttakenda í kyndilgöngunni voru meðal annars Andrew Parson, forseti IPC auk íþróttafólks og annarra fulltrúa Paralympics hreyfingarinnar, alls tóku 501 kyndilberi þátt í ferð eldsins.
Paralympic eldurinn var upphaflega kveiktur 24. febrúar í Stoke Mandeville í Bretlandi sem talinn er fæðingarstaður Paralympic hreyfingarinnar.
Paralympics Mílanó og Cortina fara fram 6. mars til 15. mars. Þar keppa yfir 600 íþróttafólk frá um 50 þjóðum um verðlaun í 79 greinum í sex íþróttagreinum.
