Heim 1. tbl. 2026 „Make Every Race Count“ Ný herferð Special Olympics og Michael Phelps Foundation

„Make Every Race Count“ Ný herferð Special Olympics og Michael Phelps Foundation

2 min read
Slökkt á athugasemdum við „Make Every Race Count“ Ný herferð Special Olympics og Michael Phelps Foundation
0
48

Sund er ein vinsælasta íþróttin innan Special Olympics og heldur áfram að vaxa hratt um allan heim. Með sífellt fleiri iðkendum verður mikilvægara að leggja áherslu á góðan undirbúning, rétta tækni og skýran skilning á reglum í keppni. Á heimsleikum Special Olympics í Berlín 2023 kom í ljós að mikið af sundfólki var ógilt í keppni. Þó það sé eðlilegur hluti af því að læra sýnir það líka tækifæri til þess að bæta fræðslu og undirbúning.

Alþjóðlega herferðin Make Every Race Count varð því til í samstarfi Special Olympics og Michael Phelps Foundation. Markmið þeirra er að hjálpa sundfólki að ná betri árangri, auka sjálfstraust og með réttum æfingum og skýrari leiðbeiningum getur sundfólk verið betur undirbúið þegar á reynir.

Herferðin leggur mikla áherslu á hlutverk þjálfarans og gefur þeim einföld tæki og tól sem hægt er að nýta á æfingum með það markmið að efla bæði tækni og skilning á reglum. Þetta hjálpar sundfólki ekki aðeins að forðast mistök heldur líka að auka sjálfstraust og njóta þess að keppa.

Sækja skyldar greinar
Load More By Thelma Grétarsdóttir
Load More In 1. tbl. 2026
Comments are closed.

Skoðaðu einnig

Inngilding í fókus á vinnustofu ÍF og BLÍ

Dagana 17.-19. apríl mun Íþróttasamband fatlaðra í samstarfi við Blaksamband Íslands stand…