Arna Sigríður Albertsdóttir keppir fyrir Íslands hönd í skíðagöngu á Paralympics í Milano Cortina 2026.
Arna tekur þátt í tveimur greinum og verða þær báðar sýndar í beinni á RÚV:
10. mars Sprettur kl. 10:25 (09:25 á íslenskum tíma)
11. Mars 10km ganga kl. 09:45 (08:45 á íslenskum tíma)
Fara göngurnar fram á keppnissvæðinu Tesero Cross-Country Skiing Stadium en íslenski hópurinn er staðsettur í Paralympic þorpinu Predazzo og hefur komið sér vel þar fyrir.
Hægt er að fylgjast betur með hópnum á Instagramreikningnum NPC Iceland.
