Heim 1. tbl. 2026 Íslandsmót ÍF í frjálsum innanhúss 2026

Íslandsmót ÍF í frjálsum innanhúss 2026

2 min read
Slökkt á athugasemdum við Íslandsmót ÍF í frjálsum innanhúss 2026
0
356

Helgina 28. febrúar – 1. mars fer fram Íslandsmót ÍF í frjálsum innanhúss 2026. Mótið fer fram í Laugardalshöllinni þar sem frjálsíþróttadeild Ármanns sér um framkvæmd mótsins. Íslandsmótið fer fram samhliða Meistaramóti Íslands hjá FRÍ og verður því mikil stemning í höllinni.

Í fyrsta skiptið hafa verið sett lágmörk á mótið líkt og hefur tíðkast á Meistaramóti Íslands hjá FRÍ. Þar af leiðandi eru skilirði fyrir þáttöku að keppendur séu með lágmörk í sínum greinum.

Um áramótið tók Frjálsíþróttasamband Íslands stórt skref í starfænu skipulagi móta þar sem mótaforritið Þór var lagt niður og Roster Athletics tók alfarið við sem mótaumsjónakerfi. Þar af leiðandi mun mótahald Íslandsmótsins í ár fara fram í gegnum Roster Athletics. Hægt verður að finna mótið inn á síðu Roster Athletics hér.

Búið er að opna fyrir skráningar á mótið en til að skrá keppanda skal fylla út skráningarskjal og senda til Melkorku á melkorka@ifsport.is. Skráningarfrestur er út mánudaginn 23. febrúar.

Hlökkum til að sjá ykkur í Laugardalshöllinni!

Myndir frá Íslandsmóti ÍF í frjálsum 2025

Sækja skyldar greinar
Load More By Melkorka Hafliðadóttir
Load More In 1. tbl. 2026
Comments are closed.

Skoðaðu einnig

Ólafur Eiríksson heiðraður gullmerki SH

Í tilefni af 80 ára afmæli SH í sumar var ákveðið að heiðra sundmenn SH sem hafa keppt á Ó…