Heim 1. tbl. 2026 Íslandsleikar Special Olympics og Íslandsmót í Para badminton haldið í fyrsta sinn

Íslandsleikar Special Olympics og Íslandsmót í Para badminton haldið í fyrsta sinn

3 min read
Slökkt á athugasemdum við Íslandsleikar Special Olympics og Íslandsmót í Para badminton haldið í fyrsta sinn
0
200

Frétt fengin af badmintonfelag.is

Íþróttasamband fatlaðra og Badmintonfélag Hafnarfjarðar halda í sameiningu fyrsta Íslandsmótið í Para badminton og fyrstu Íslandsleika Special Olympics í badminton sunnudaginn 26.apríl. Mótið fer fram í íþróttahúsinu við Strandgötu og hefst klukkan 10:00.

Keppt verður í para badminton (hreyfihamlaðir) í eftirfarandi flokkum:

WH – Sitjandi karlar og konur saman (stólar á staðnum)

SL/SU – Standandi karlar og konur saman

Allur aldur keppir saman

Sameinað ef það eru 3 eða færri í flokki

Nánari upplýsingar og skráning hér.

Keppt verður í eftirfarandi flokkum Special Olympics (þroskahamlaðir) :

16 ára og eldri (fædd 2010 og eldri) – einliðaleikur karla og kvenna

16 ára og eldri (fædd 2010 og eldri) – tvíliðaleikur blönduð kyn

15 ára og yngri (fædd 2011 og yngri) – einliðaleikur stráka og stelpna

Sameinað ef það eru 3 eða færri í flokki

Nánari upplýsingar og skráning hér.

Þátttökugjöld eru:

2.000 krónur í einliðaleik.

1.000 krónur í tvíliða- og tvenndarleik.

Aðgengi gott að húsi og á salerni

Búningsklefar ekki með góðu aðgengi fyrir hjólastóla

Upplýsingar um mótið veitir

Sólrún Anna Ingvarsdóttir

solrunanna99@gmail.com

gsm. 869-1490

Skráningu lýkur föstudaginn 17.apríl.

Öll velkomin á æfingar með Allir með hóp BH á sunnudögum kl.15:00-16:00 til að æfa sig fyrir mótið. Athugið að ekki verður hægt að æfa sig á hjólastólum sunnudaginn 19.apríl þar sem badmintonkeppnismottur verða á gólfinu. Föstudaginn 17.apríl kl.18:30 verður opin æfing fyrir keppendur í hjólastólum og verða hjólastólar frá ÍF á staðnum.

Endilega látið orðið berast og hvetjið vini og kunningja til að skrá sig til þátttöku.

Sækja skyldar greinar
Load More By Thelma Grétarsdóttir
Load More In 1. tbl. 2026
Comments are closed.

Skoðaðu einnig

Vel heppnaðir Íslandsleikar í áhaldafimleikum

Íslandsleikar Special Olympics í áhaldafimleikum fóru fram í fimleikahúsi Bjarkar í Hafnar…