Dagana 17.-19. apríl mun Íþróttasamband fatlaðra í samstarfi við Blaksamband Íslands standa fyrir þriggja daga vinnustofu. Markmið vinnustofunnar er að efla þekkingu og færni þjálfara ásamt annarra áhugasamra. Vinnustofan er opin öllum og er ekki þörf á að hafa æft eða spilað blak áður.
Í vinnustofunni verður lögð sérstök áhersla á sitjandi blak og unified blak sem ýtir undir aukna þátttöku og fjölbreytni innan íþróttarinnar. Þátttakendur fá bæði fræðilega innsýn og verklega reynslu í aðlögun æfinga og skipulagi þjálfunar fyrir fjölbreyttan hóp iðkenda, með það að markmiði að geta yfirfært þekkinguna beint í sitt starf.
Jafnframt verður fjallað um hvernig hægt að byggja upp og þróa íþróttastarf frá grunni, sérstaklega í samhengi við yngri flokka og aðstoður í smáum þjóðum. Rýnt verður í hagnýtar leiðir til að hefja starf, auka þátttöku og skapa jákvætt og aðlagandi umhverfi fyrir iðkendur, ásamt því hvernig hægt er að móta skýra stefnu og byggja upp sjálfbært starf innan félaga.
Leiðbeinandi vinnustofunnar er John Kessel en hann hefur starfað sem þjálfari og er í dag leiðbeinandi fyrir m.a. FIVB, USA Volleyball NORCECA, World ParaVolley og Special Olympics. Hann býr yfir víðtækri reynslu af þjálfun og þróunarstarfi á alþjóðavettvangi.

Þátttakendur taka þátt í verklegum æfingum, hópavinnu og umræðum, að lokinni vinnustofu fá allir skírteini sem staðfestir þátttöku og að einstaklingur hafi öðlast grunn til að hefja þjálfum í sitjandi blaki og unified blaki á Íslandi, ásamt bóklegri og verklegri fræðslu um þróun íþrótta í yngri flokkum.
Skráning fer fram hér
Skráning er opin til og með 12. apríl
