Heim 1. tbl. 2026 Gló Æfingastöð, ÍBR og ÍFR standa að Parastart íþróttanámskeiði

Gló Æfingastöð, ÍBR og ÍFR standa að Parastart íþróttanámskeiði

3 min read
Slökkt á athugasemdum við Gló Æfingastöð, ÍBR og ÍFR standa að Parastart íþróttanámskeiði
1
104

Gló Æfingastöð, ÍBR og ÍFR standa að Parastart íþróttanámskeiði sem er sérstaklega ætlað 8-15 ára börnum og ungmennum með hreyfihömlun. Markmiðið námskeiðisins er að kynna fjölbreyttar íþróttir í öruggu og hvetjandi umhverfi með góðum búnaði og fyrirmyndum úr afreksíþróttum. 

Námskeiðið er einstakt tækifæri til að kynnast Paralympics-íþróttum og hvernig hægt er að nálgast hreyfingu á eigin forsendum. Engin krafa er um fyrri þátttöku í íþróttum – aðeins opinn hugur og vilji til að prófa. Athugið: Námskeiðið er miðað við þátttakendur sem uppfylla flokkunarviðmið sambærileg þeim sem notuð eru í Paralympics-íþróttum og er því ekki sniðið að þörfum barna með þroskaskerðingar. 

Foreldrum er velkomið að hafa samband ef þau eru óviss hvort námskeiðið henti þeirra barni í netfang: glo@glofelag.is

Námskeiðið hefst á kynningu fyrir foreldra. Í kjölfarið fá þátttakendur tækifæri til að prófa badminton, borðtennis, bogfimi, körfubolta, rugby og frjálsar íþróttir, auk þess að kynnast og prófa íþróttahjólastóla, frame running-hjól og annan sérhæfðan búnað sem styður við þátttöku hreyfihamlaðra barna og ungmenna í íþróttum.

Yfirþjálfari er Hákon Atli Bjarkason, sem leiðir námskeiðið ásamt sérhæfðum íþróttaþjálfurum í hverri íþróttagrein. Að auki verða sjúkraþjálfari og iðjuþjálfi frá Gló Æfingastöð með í för og styðja þátttakendur í gegnum allt námskeiðið.

  • Mismunandi íþróttahús á höfuðborgarsvæðinu með gott aðgengi
  • Skráning fer fram á Abler
  • Verð: 15.000 kr. Hægt er að nota frístundastyrk.
  • Takmarkað pláss – tryggðu þátttöku tímanlega!

Hægt er að skrá á námskeiðið hér

Ath að dagskrá er birt með fyrirvara um breytingar.

Sækja skyldar greinar
Load More By Melkorka Hafliðadóttir
Load More In 1. tbl. 2026
Comments are closed.

Skoðaðu einnig

Skráning er hafin á Íslandsmót ÍF í borðtennis 2026

Íslandsmót ÍF í borðtennis fer fram laugardaginn 7. mars í íþróttahúsi ÍFR. Húsið opnar kl…