Gló Æfingastöð býður foreldrum og fjölskyldum á fræðslu um almennt Paralympic íþróttastarf og mikilvægi hreyfingar fyrir öll auk þess að kynna Parastart verkefnið. Viðburðurinn er skipulagður í tengslum við Parastart íþróttanámskeið sem er sérstaklega ætlað 8-15 ára börnum og ungmennum með hreyfihömlun.
Hákon Atli Bjarkason, afreksmaður og þjálfari ÍFR, og Ingi Þór Einarsson, lektor við íþróttafræðideild HR munu sjá um fræðsluna en markmið hennar er að kynna fjölbreyttar íþróttir í öruggu og hvetjandi umhverfi með góðum búnaði og fyrirmyndum úr afreksíþróttum. Námskeiðið er einstakt tækifæri til að kynnast Paralympics-íþróttum og hvernig hægt er að nálgast hreyfingu á eigin forsendum.
Viðburðurinn verður haldin fimmtudaginn 19. febrúar kl. 18:00 í Gló æfingamiðstöð, er hann opinn öllum og frítt inn. Við hvetjum foreldra og fjölskyldur barna með hreyfihömlun á öllum aldri að mæta.
Nánari upplýsingar um viðburðinn má nálgast á facebook viðburðarsíðu sem finna má hér
Meiri upplýsingar um Parastart íþróttanámskeiðið má finna hér
