Heim 1. tbl. 2026 Fyrsta keppnislið Íslands á Special Olympics körfuboltamóti

Fyrsta keppnislið Íslands á Special Olympics körfuboltamóti

3 min read
Slökkt á athugasemdum við Fyrsta keppnislið Íslands á Special Olympics körfuboltamóti
0
29

Höfundur, Anna Karólína Vilhjálmsdóttir

Í tengslum við FIBA Open í Sviss 2026 verður sérstök keppni Special Olympicss liða frá 16 löndum en þetta er í áttunda skipti sem slík keppni fer fram samhliða FIBA Open. Keppnin er 3×3 unified sem byggir a fimm liðsmönnum, þar af þremur með fötlun. Ísland fékk kvóta til að senda lið á þetta mót og verður það í fyrsta skipti sem Special Olympics á Íslandi sendir körfuboltalið til keppni erlendis. Aldursviðmið er 16 ára og gera má ráð fyrir að íslensku keppendurnir verði með þeim yngstu sem taka þátt en körfubolti er gríðarlega vinsæl grein hjá Special Olympics samtökunum.

Special Olympics körfuboltalið Hauka fékk að tilnefna þátttakendur og Bára Fanney, þjálfari hefur í samráði við aðstandendur staðfest nöfn þeirra sem skipa munu liðið fyrir hönd íslenska hópsins.

Mikilvægt er að Ísland geti kynnt það starf sem komið er af stað í körfuboltanum svo fleiri tilboð berist. Þetta fyrsta skref á stóra sviðinu er því þýðingarmikið og opnar dyr að fleiri tækifærum.

Það verður spennandi að fylgjast með þessu verkefni en undirbúningur er nú í fullum gangi, fyrirvarinn er ekki langur og er því verk að vinna. Inngilding er meginþema á þessu móti sem leiðir saman liðsmenn með og án fötlunar, skapar liðsheild gegnum íþróttastarfið þar sem allir stefna að sama marki, að vinna leikinn. Þessi aðferðafræði sem byggir á keppni undir heitinu „unified“ skapar tækifæri til aukinnar inngildingar í ólíkum íþróttagreinum og er frábært verkfæri í þeirri langtímavegferð sem inngildingarferli kallar á.

Special Olympics á Íslandi fagnar þessu nýja skrefi og það verða glæsilegir fulltrúar sem mæta til leiks í Sviss í júní.

Sækja skyldar greinar
Load More By Thelma Grétarsdóttir
Load More In 1. tbl. 2026
Comments are closed.

Skoðaðu einnig

Vel heppnaðir Íslandsleikar þrátt fyrir veðuráskoranir

Íslandsleikarnir í boltaíþróttum fóru fram í Reykjanesbæ síðastliðna helgi, 28. og 29. mar…