Heim 1. tbl. 2026 Frábær árangur á Malmö Open í borðtennis

Frábær árangur á Malmö Open í borðtennis

2 min read
Slökkt á athugasemdum við Frábær árangur á Malmö Open í borðtennis
0
102

8 keppendur frá borðtennisdeild ÍFR fóru til Svíþjóðar að keppa á Malmö Open dagana 6-8 febrúar. Hópurinn átti frábært mót og kom heim með 5 verðlaun.

  • Jóna Kristín – 1. sæti í flokki 1-3 b
  • Jóna Kristín og Hákon Atli Bjarkason – 3 sæti í tvíliðaleik b
  • Vova og Nóni – 3 sæti í tvíliðaleik b

Jóna Kristín átti frábært mót. Hún vann sinn riðil í Performance 3 og komst í 8 manna úrslit, auk þess sem hún tryggði sér 1.–3. b.flokks titilinn. Hákon Atli Bjarkason sigraði sterkan leik í riðli þar sem hann bar sigur í leik gegn sterkum andstæðingi frá Austurríki, en datt svo út í 8 manna úrslitum gegn ríkjandi Paralympic-meistara.

Í tvíliðaleiknum enduðu Jóna Kristín og Hákon Atli í 3. sæti, og Vova og Nóni hlutu einnig 3. sætið í sínum tvíliðaleik. Vova fór upp úr riðli í C1–3 en tapaði í 8 manna úrslitum gegn Paralympic-keppanda frá Kanada. Nóni vann tvo leiki í Performance 3, og Óskar komst í 8 manna úrslit í bæði Performance 3 og flokki 11.

Agnes Lovísa jóhannsdóttir spilaði mjög vel þar sem hún vann 2 leiki og komst í 5 oddalotur. Björgvin spilaði einnig vel þar sem hann vann leik en tapaði öðrum í oddalotu og Anna Karen spilaði frábærlega í U15 og komst í A úrslitarkeppni.

Heilt yfir frábært mót hjá liði ÍFR sem gefur góðar vonir fyrir komandi keppnir.

Sækja skyldar greinar
Load More By Melkorka Hafliðadóttir
Load More In 1. tbl. 2026
Comments are closed.

Skoðaðu einnig

Ráðherra skrifaði undir fimm samninga við íþróttahreyfinguna

„Við viljum jafna tækifæri til íþróttaiðkunar um allt land og nýta íþróttir til að byggja …