Helgina 28. febrúar – 1. mars fer fram Íslandsmót ÍF í frjálsum innanhúss 2026. Mótið fer fram í Laugardalshöllinni þar sem frjálsíþróttadeild Ármanns sér um framkvæmd mótsins. Íslandsmótið fer fram samhliða Meistaramóti Íslands hjá FRÍ og verður því mikil stemning í höllinni. Í fyrsta skiptið hafa verið sett lágmörk á mótið líkt og hefur tíðkast á Meistaramóti Íslands hjá FRÍ. …