Alls eru 56 þjóðir sem taka þátt í Vetrar Paralympics 2026. Fánaberi Íslands var engin annar en hún Arna Sigríður Albertsdóttir og var hún númer 27 í inngönguröð þjóðanna á opnunarhátíðinni.
Það voru ekki allir sem höfðu kost á því að vera viðstaddir opnunarhátíðina í Verona og voru það þess vegna sjálfboðaliðar sem sáu um að bera þjóðfána landanna á meðan skrúðgangan fór fram. Allir fánaberar þjóðanna komu þó fram í stuttum myndböndum sem voru sýnd á meðan skrúðgöngunni stóð.

Arna keppir fyrir Íslands hönd í skíðagöngu og er hún fyrst íslenskra kvenna sem tekur þátt í bæði vetrar og sumar Paralympics. Arna mun hefja keppni 10. mars og verður gangan sýnd í beinni á RÚV.
