Bikar- og Flokkamót ÍF fór fram um helgina, 16.–17. maí, í Laugardalslaug. Fjörður tryggði sér bikarmeistaratitilinn í 17. sinn með 838 stigum en annars skiptust stigin svona á milli þáttökuliðanna:
- Fjörður – 838
- Reykjavík – 535
- Óðinn – 60
Á mótinu féllu þrjú Íslandsmet:
- Sigrún Kjartansdóttir (S18) — 200 m frjáls aðferð: 3:13,80
- Snævar Örn Kristmannsson (S19) — 50 m baksund: 0:33,70
- Sigrún Kjartansdóttir (S18) — 400 m frjáls aðferð: 7:04,44
Stjórn og starfsfólk ÍF þakkar öllum sem komu að framkvæmd mótsins. Óskum Firði innilega til hamingju með titilinn og Snævari og Sigrúnu með Íslandsmetin.


