Dagana 10.–12. maí fór sundmótið IDM fram í Berlín, haldið í kjölfar World Series-keppninnar þar sem Róbert, Sonja og Thelma tóku þátt. Snævar Örn Kristmannsson var meðal keppenda og keppti í 200 m flugsundi, 100 m flugsundi, 50 m flugsundi og 100 m skriðsundi.
Snævar synti 100 m skriðsund á 58,65 og bætti þar með Íslandsmet í sínum flokki; gamla metið var 59,22 frá 2025. Í 200 m flugsundi komst hann í mark á 2:23,83 og endaði í 3. sæti.
Úrslit mótsins
- 100 m skriðsund, undanrásir 00:58.65, Íslandsmet
- 50 m flugsund, undanrásir: 00:28.03, áfram í B-úrslit: 00:27.67
- 100m flugsund: 01:02.15, áfram í B- úrslit (tími í B-úrslitum ekki skráður)
- 200m flugsund: 2:23.83, 3 sæti


