Heim 1. tbl. 2026 Róbert fjórði í Barcelona

Róbert fjórði í Barcelona

1 min read
Slökkt á athugasemdum við Róbert fjórði í Barcelona
1
205

Dagana 19-22 mars fór fram World Series í sundi í Barcelóna. Róbert keppti þar í tveimur greinum, 100m bringusundi og 100m flugsundi.

Róbert keppti í 100m bringusundi föstudaginn 20. mars. Hann synti undanúrslitin á 1:11.72 sem tryggði honum sæti í B- úrslitum síðar um daginn. Róbert kom þar fyrstur í mark á 1:11.95.

22. mars keppti Róbert í 100m flugsundi Hann synti í undanúrslitum á 1:00.55 og komst áfram í A-úrslit. Í úrslitunum bætti hann tímann sinn frá því um morguninn og endaði í 4 sæti á tímanum 1:00.41.

Það er nóg um að vera í sundinu en næst á dagskrá er Íslandsmótið í sundi sem fer fram 27.–29. mars í Ásvallalaug.

Sækja skyldar greinar
Load More By Melkorka Hafliðadóttir
Load More In 1. tbl. 2026
Comments are closed.

Skoðaðu einnig

Frjálsíþróttafjör í Kaplakrika

Sunnudaginn 15. mars fóru fram Íslandsleikar Special Olympics í frjálsum innanhúss. Mótið …