Heim 1. tbl. 2026 Agnes Lovísa og Anna Karen Íslandsmeistarar í tvíliðaleik U15

Agnes Lovísa og Anna Karen Íslandsmeistarar í tvíliðaleik U15

2 min read
Slökkt á athugasemdum við Agnes Lovísa og Anna Karen Íslandsmeistarar í tvíliðaleik U15
0
89

Helgina 28. febrúar – 1. mars fór fram Íslandsmót unglinga í borðtennis á Selfossi. Mótið var haldið í fyrsta sinn á Selfossi þar sem 130 keppendur tóku þátt frá 15 félögum. Á mótinu var leikið um 17 Íslandsmeistaratitla – 8 í einliðaleik, 6 í tvíliðaleik og 3 í tvenndarleik.

ÍFR mætti með 3 keppendur á mótið en það voru þau Agnes Lovísa, Anna Karen og Björgvin Arnar. Hópurinn átti frábært mót þar sem Stelpurnar unnu hvora um sig silfurverðlaun og Björgvin bronsverðlaun í sínum aldursflokkum í einliðaleik. Agnes Lovísa og Anna karen tóku einnig þátt í tvíliðaleik meyja U15. Stelpurnar spiluðu frábærlega og enduðu sem Íslandsmeistarar í tvíliðaleik meyja U15.

Mikill uppgangur hefur verið í borðtennis undanfarin ár eins og sjá má á fjölda keppenda sem tóku þátt á mótinu um helgina. ÍFR hefur vakið athygli fyrir fjölgun iðkenda hjá félaginu og er nú að uppskera afraksturinn.

Næst á dagskrá er Íslandsmót ÍF í borðtennis sem fer fram á laugardaginn, 7. mars. Mótið fer fram í íþróttahúsi ÍFR þar sem keppni hefst kl 13:00.

Sækja skyldar greinar
Load More By Melkorka Hafliðadóttir
Load More In 1. tbl. 2026
Comments are closed.

Skoðaðu einnig

Fjörður Íslandsmeistari félagsliða í frjálsum innanhúss 2026

Íslandsmót ÍF í frjálsum innanhúss fór fram um helgina, 28. febrúar – 1. mars. Mikil…