8 keppendur frá borðtennisdeild ÍFR fóru til Svíþjóðar að keppa á Malmö Open dagana 6-8 febrúar. Hópurinn átti frábært mót og kom heim með 5 verðlaun.
- Jóna Kristín – 1. sæti í flokki 1-3 b
- Jóna Kristín og Hákon Atli Bjarkason – 3 sæti í tvíliðaleik b
- Vova og Nóni – 3 sæti í tvíliðaleik b
Jóna Kristín átti frábært mót. Hún vann sinn riðil í Performance 3 og komst í 8 manna úrslit, auk þess sem hún tryggði sér 1.–3. b.flokks titilinn. Hákon Atli Bjarkason sigraði sterkan leik í riðli þar sem hann bar sigur í leik gegn sterkum andstæðingi frá Austurríki, en datt svo út í 8 manna úrslitum gegn ríkjandi Paralympic-meistara.
Í tvíliðaleiknum enduðu Jóna Kristín og Hákon Atli í 3. sæti, og Vova og Nóni hlutu einnig 3. sætið í sínum tvíliðaleik. Vova fór upp úr riðli í C1–3 en tapaði í 8 manna úrslitum gegn Paralympic-keppanda frá Kanada. Nóni vann tvo leiki í Performance 3, og Óskar komst í 8 manna úrslit í bæði Performance 3 og flokki 11.
Agnes Lovísa jóhannsdóttir spilaði mjög vel þar sem hún vann 2 leiki og komst í 5 oddalotur. Björgvin spilaði einnig vel þar sem hann vann leik en tapaði öðrum í oddalotu og Anna Karen spilaði frábærlega í U15 og komst í A úrslitarkeppni.
Heilt yfir frábært mót hjá liði ÍFR sem gefur góðar vonir fyrir komandi keppnir.





