Gló Æfingastöð, ÍBR og ÍFR standa að Parastart íþróttanámskeiði sem er sérstaklega ætlað 8-15 ára börnum og ungmennum með hreyfihömlun. Markmiðið námskeiðisins er að kynna fjölbreyttar íþróttir í öruggu og hvetjandi umhverfi með góðum búnaði og fyrirmyndum úr afreksíþróttum.
Námskeiðið er einstakt tækifæri til að kynnast Paralympics-íþróttum og hvernig hægt er að nálgast hreyfingu á eigin forsendum. Engin krafa er um fyrri þátttöku í íþróttum – aðeins opinn hugur og vilji til að prófa. Athugið: Námskeiðið er miðað við þátttakendur sem uppfylla flokkunarviðmið sambærileg þeim sem notuð eru í Paralympics-íþróttum og er því ekki sniðið að þörfum barna með þroskaskerðingar.
Foreldrum er velkomið að hafa samband ef þau eru óviss hvort námskeiðið henti þeirra barni í netfang: glo@glofelag.is
Námskeiðið hefst á kynningu fyrir foreldra. Í kjölfarið fá þátttakendur tækifæri til að prófa badminton, borðtennis, bogfimi, körfubolta, rugby og frjálsar íþróttir, auk þess að kynnast og prófa íþróttahjólastóla, frame running-hjól og annan sérhæfðan búnað sem styður við þátttöku hreyfihamlaðra barna og ungmenna í íþróttum.
Yfirþjálfari er Hákon Atli Bjarkason, sem leiðir námskeiðið ásamt sérhæfðum íþróttaþjálfurum í hverri íþróttagrein. Að auki verða sjúkraþjálfari og iðjuþjálfi frá Gló Æfingastöð með í för og styðja þátttakendur í gegnum allt námskeiðið.
- Mismunandi íþróttahús á höfuðborgarsvæðinu með gott aðgengi
- Skráning fer fram á Abler
- Verð: 15.000 kr. Hægt er að nota frístundastyrk.
- Takmarkað pláss – tryggðu þátttöku tímanlega!
Hægt er að skrá á námskeiðið hér


Ath að dagskrá er birt með fyrirvara um breytingar.
